|
|
25.05.2007 14:57:05 / IngibjörgElín
Dagný.. þú áttir seinasta orðið 
www.ingelin.bloggar.is
Takk í bili .
»
24.05.2007 18:29:30 / IngibjörgElín
Ég er að spá í hvort
ég eigi að fá mér bloggar.is síðu ? :-) Ég er eitthvað svo leið á
þessari síðu.. enda búin að eiga hana í meira en 2 ár.
Hvað finnst ykkur ?
Er þessi alveg fín eða ætti ég að breyta til ?
»
19.05.2007 19:23:28 / IngibjörgElín
Í dag er merkilegur dagur
Ég á
afmæli, komin með bílpróf og allt í góðu!
Bauð
nokkrum stelpum heim til mín í gær og svaka stuð. Síðan fór ég með
mömmu að sækja bílprófið kl 12 og auðvitað tókst Einari að hrekkja
mig all svakalega...
Hann fór niðrá stöð þegar ég vissi ekki affyrir kl 12 og sagði
þeim að segja að bílprófið mitt væri ekki þarna niðri, að það hefði
gleymst uppi á sýsluskrifstofu. Ég fékk sjokk og var síðan við það
að labba út og þá sögðu þeir að þetta væri djók... mamma vissi
þetta og allt það. En þegar út í bíl var komið þá bara fór ég að
gráta haha.. fékk bara algert spennufall. Einar var geðveikt
sorry en ég jafnaði mig og hélt síðan útí umferðina, það er
æðipæði.
Erum
líka flutt upp og voðalega gaman.. sit hér í nýja sófasettinu okkar
í tölvunni, erum að baka pizzu. mmmm : )
-Ingibjörg afmælisbarn
Bless í bili....
»
15.05.2007 17:50:35 / IngibjörgElín
Hæ öll sem .. allavega kíkja inná þessa síðu.
Mikið búið að gerast síðan ég skrifaði
seinast : )
- Einar átti afmæli
Lísa átti afmæli og fékk bílpróf, til hamingju aftur :*
Ég tók lokaprófin og náði öllu.. 8 í meðaleinkun.
Ég búin með alla mína ökutíma.
Ég prufaði í gær að vinna í hamró, sjáum til hvort ég fái þar inn,
gekk allavega mjög vel : )
Húsið mitt svona eiginlega kláraðist, verður tilbúið fyrir smá
stelputeiti á föstudaginn vonandi.
Åshild fór aftur til Noregs.
Ég fór á mína fyrstu fótboltaæfingu og tognaði illa, fór til læknis
og það kom í ljós að ökklinn er laus í liðnum, ég verð að fara með
teyjuband fyrst um sinn og sleppa að spila fótbolta í 3 vikur, ætla
bara að ganga og hjóla. Týpiskt !!
Síðan er bara að sjá hvað sumarið ber í skauti sér. Ég
vona svo innilega að þeir vilji fá mig til vinnu þarna í Hamraborg,
það var bara fínt að vera þarna í gær. Ég fer á Gufuskála 12. júli
og verð alveg þangað til 26.júlí. Fyrst á grunnnámskeið og síðan
erum við að fara að taka á móti englendingum sem ætla að koma til
okkar frá Englandi, en krakkarnir heimsóttu þau einmitt seinasta
sumar. Við stelpurnar ætlum að taka road trip eitthvert útí buskann
og svoleiðis.. vá ég get ekki beðið eftir að sumarið sé bara í
alvörunni komið.!
Ég og Einar erum búin að vera saman í hálft ár í dag, það er alveg
ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Við ætlum einmitt að gera
eitthvað skemmtilegt saman í sumar, fara tvö í útilegu, fara
vonandi eittvert um Verslunarmannahelgina með vinum okkar. Oh hvað
þetta hljómar allt svo spennandi .
Eins og sumir vita á ég afmæli á laugardaginn.Ég tek
verklega bílprófið á fimmtudaginn og er smá stressuð, en þetta
reddast. Ég ætla að bjóða nokkrum stelpum heim á helginni og
vonandi gera mér glaðan dag.Ég bara trúi varla að ég sé að fara að
fá bílpróf... geti bara keyrt þegar Einar nennir því ekki .. tekið
stelpurnar í rúnt þegar okkur leiðist og svoleiðis.
Ég get ekki annað sagt en ég vorkenni krökkunum í
grunnskóla að þurfa að sitja inni í þessu góða veðri og glugga í
námsbækur, ég gæti enganveginn hugsað mér að gera það núna. En
þetta þurfti maður að ganga í gegnum. Ég hlakka líka til að fá
Sólveigu, Kolbrúnu, Katrínu og fleiri skemmtilegar stelpur uppí
Menntaskólann á næsta ári. lífga uppá stemminguna, þá er maður
heldur ekki lengur yngstur og busi, hehe : )
Það er ekkert smá fúlt að geta ekkert hlaupið almennilega , getað
farið á fótboltaæfingar og eitthvað núna.. ég sit bara
aðgerðarlaus, fór reyndar aðeins út með Önnu í dag.. pantaði tíma á
morgun í Divu í plokkun (þarf að vera fín á laugardaginn) og
sitthvað.
Bannerinn hér að ofan var bara settur í fljótfærni .. en
þetta eru Unglingameistarar í Boðgöngu stúlkna 2007 !...
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili .. en þið megið
alveg vera dugleg að tjá ykkur.. ekkert gerðist hér að neðan(frekar
vandræðalegt) .. Megið líka alveg segja mér hvað mætti bæta á
síðunni.
 
Með kveðju, Ingibjörg Elín

»
30.04.2007 13:37:36 / IngibjörgElín
Elsku Jónína mín,
hjartanlega til hamingju með 17 ára afmælið. Hlakka til að getað
rúntað með þér : )
Hæhæ..langar að skrifa
nokkrar línur..
Lokaballið var á
föstudaginn.. ég fór ekki á það og ég sé alls ekki eftir
því.
Fossavatnsgangan á
laugardaginn og ég gekk 20 km og gekk alveg prýðilega.. kom fyrst í
mark af konum í 20 og alles.. og fékk stórann farandbikar sem ég fæ
að varðveita í eitt ár, og svo annann með .. : ) Gaman af þvíí.. Ég
var gjörsamlega búin á því þegar ég loksins kom í mark .. þetta var
samt frábært, rosalega gott veður og ég er ekki frá því að ég hafi
fengið smá lit í sólinni.
Laugardagskveldið
hitti ég bara stelpurnar.. þar á meðal Dagný sem var í jarðaför hjá
afa sínum .. samhryggist sæta :* .. Það var fínt að hitta gellurnar
aðeins en fór síðan bara heim um svona hálf 2 með Einari
gjörsamlega úrvinda úr þreytu.
Á sunnudaginn var
kassaklifur hjá unglingadeildinni og ég átti að fara að vinna í
Hamró en það var svo mikið að gera hjá þeim að við frestuðum því
aðeins. Grill og góður matur heima hjá Einari um kveldið og frábært
veður.,.. ég hafði nú ekki meiri orku en það að ég lagði mig eftir
matinn til svona hálf 10 og fór síðan aftur að sofa um kl
00.
... Annars er seinasti
skóladagurinn í dag, vá hvað þetta er allt saman fljótt að líða. 19
dagar í bílpróf og stutt í almennilegt suuuumarfríí
!!!
Einar Birkir á afmæli
á morgun, 1.maí.. ég ætla að gefa kærastanum mínum eitthvað
voðalega fallegt í afmælisgjöf. Þetta verður pottþétt skemmtilegur
dagur sem við munum eiga saman á morgun. ;*
ég og mamma :*
-Ingibjörg
Elín Magnúsdóttir-
»
25.04.2007 16:15:55 / IngibjörgElín
Aji .. hef ekkert að
gera , langar að blogga smá =)
Skólinn er um það bil
alveg að verða búinn, bara tveir skóladagar eftir og mánudagurinn
fer mest í að fá námseinkunnir og svoleiðis. Ég er nú bara ánægð
með frammistöðu mína þessa önn.. góða mætingu og ágætar einkunnir.
Ég er nú samt komin með smá námsleiða en það er bara eins og maður
fær oftast þegar önnin er alveg að verða búin.. samt munur að vera
búin svona snemma í ár.
Sumarið að ganga í
garð og bara eitt skíðamót eftir.. Fossavatnsgangan er á
laugardaginn og ég ætla að ganga 20.km. Það verður bara gaman. Í
sumar ætla ég örugglega að vinna í Hamraborg.. er að fara að prufa
á sunnudaginn, er smá kvíðin en vonandi að það gangi bara vel. Enda
ekki við öðru að búast .. djók :-)
Ég er að spá í að
breyta um útlit á þessari blessuðu síðu.. ekki að hún sé eitthvað
geyyyysivinsæl , er bara orðin þreytt á þessu dæmi.
Ætli maður verði ekki
að fara að bræða undir skíði eða eitthvað í þá áttina :
)
hahha vá hvað við erum sexy, elska
þig sæta :*
Ingibjörg Elín :
)
.... megið alveg kommenta á
þetta .... ef þið hafið eithvað að segja
»
20.04.2007 12:03:55 / IngibjörgElín
Hæhæ ..
Gleðilegt sumar ;* .. Ég hef nákvæmlega ekkert að gera
hérna í eyðu svo mig langar að skrifa nokkur orð ..
Landsmótið er búið og það gekk svona upp og niður.. hefði
getað gengið betur en er samt alveg ágætlega sátt með frammistöðu
mína, þetta er búinn að vera skemmtilegur vetur , endalausar
keppnir og núna er það bara Fossavatnið sem er eftir.. ég ætla að
ganga 20 km núna í ár í fyrsta skiptið, ég held það verið mjög
gaman. Ég hlakka mjög mikið til sumarsins, ætla að fá mér ný
hjólaskíði (skauta) og æfa vel, hlaupa, fjallgöngu, hjólaskíði og
fleira.. held ég verði ekki eins mikið í fótboltanum í sumar eins
og seinasta sumar því ég hef sett mér markmið sem ég ætla að reyna
að ná og standast. Maður þarf að æfa sig til að vera góður á sínu
sviði sjáiði til :-)
Einar er einn heima núna yfir helgina og er að vinna í
lögreglunni kvöld, Arna Sigríður er í bænum og ég ætla
að bjóða nokkrum stelpum heim til hans og við ætlum að hafa það
kósý, það verður mjög gaman :-) Síðan annaðkvöld ætlum ég og Einar
að hafa það kósý.. elda og svoleiðis.. hvað er betra en að eiga
kósý kvöld?.. hehe =) Hjá mér gerist það allavega ekkert mjög
oft vegna vinnu hjá honum.
Í dag eru 29.dagar í bílprófið og ég er ekkert smá
spennt.. þar sem ég er búin að ná bóklega á ég bara eftir að ná
verklega prófinu sem ég geri eflaust enda fanta góður driver hér á
ferð, haha! .. Allavega er planaður rúntur aðfaranótt 19.maí og
auðvitað eru stelpurnar búnar að panta sæti. Þetta er svo fljótt að
líða að áður en ég veit af verð ég komin á götur bæjarins
:-)
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili .. ágætisblogg hjá
mér núna, skrifa fljótlega aftur =)
Spurning : Leikjanet.is - Hvaða leik spilaru
mest ?
Ingibjörg Elín
ég og hjalti á fyrstu jólunum

»
10.04.2007 17:27:49 / IngibjörgElín
Hæhæ..
Páskarnir eru búnir og ég er ekki búin að opna páskaeggið
mitt nr.5, ætla að gera það í kvöld. Páskarnir voru fínir og ég var
mikið á skíðum..Einar var mikið að vinna en ég var bara með
stelpunum .. þar með talinni Örnu Sigríði sem var frábært að fá
loksins í bæinn eftir langa fjarveru.
Ég legg af stað ásamt fríðu föruneyti á Skíðalandsmót
Íslands á fimmtudagsmorguninn klukkan 7, það verður ágætt að komast
smá í burtu=) Vona að það gangi bara sæmilega : ) SMÍ &
Fossavatnsgangan eru einu göngurnar sem eftir eru á tímabilinu að
ég held.
Ég fór í bóklega bílprófið í dag og náði því auðvitað, ég
er hæstánægð með það.Þetta var ekkert smá mikið stress að horfa á
hann fyrir yfir prófið en aaauðvitað náði ég þessu, enda ekki við
öðru að búast,hehe! : )
Ég ætlaði bara að skella inn færslu þar sem ég hef ekki
gert það lengi, ekki það að margir kommenti .. en það verður bara
að hafa það ! : D
ég að koma í
mark
Skiptingin hjá mér
og Silju í boðgöngunni á UMí gekk brösulega.
Ingibjörg Elín
»
02.04.2007 17:10:12 / IngibjörgElín
Helló there..
Ég ætla nú bara í fyrstu að afsaka bloggleysi
undanfarið. Ég hef haft slatta að gera í skólanum &
æfingarnar hafa verið strangar fyrir UMÍ.
Unglingameistaramótið var s.s haldið hérna á
Ísafirði yfir helgina.. á laugardaginn þá var keppt í
brjáááluðu veðri .. maður komst varla áfram vegna vinds! En
það gekk alveg ágætlega og ég lenti í öðru sæti.. =) Á
Sunnudaginn var keppt í hefðbundinni göngu .. mér tókst að
flúga á hausinn og eitthvað all svakalegt.. ég
kooolféll. En þarna varð ég þriðja .. ég og
Katrín erum að skipta á 2.og 3. sæti á milli okkar sem er
fínt !;D Í dag var siðan Boðganga .. við stelpurnar vorum með
A , B og C sveit..og vorum jafn framt eina félagið sem keppti
hjá stelpunum .. A sveitin sem var skipuð Sólveigu, Silju og
mér VANN .. B sveitin sem var skipuð Maju, Rannveigu og
Katrínu varð önnur og síðan C sveitin sem var skipuð Sigrúnu,
Kolbrúnu og Kristnýju varð þriðja.. þetta var fjör og veðrið
betra heldur en hina dagana. Sigurjón, Stebbi og Arnór unnu
einnig sigur í boðgöngu drengja.. við erum s.s
Íslands&Unglingameistarar í boðgöngu
stúlkna og drengja árið 2007.
Nú loksins er páskafríið
gengið almennilega í garð hjá mér.. við stefnum að því að
flytja upp á næstu hæð um næstu helgi sem verður nice. Ég mun
gista eitthvað hjá Einari þangað til því við erum að fara að
opna stigaganginn upp þannig það verður mikið um ryk í húsinu
þannig ég fer til Einars, Mamma og Teitur til ömmu og afa..
ég held að Hjalti og Pabbi verði bara hér heima í rykinu,
hehe =) Ég get allavega ekki beðið eftir að komast í stærra
húsnæði .. það verður alger lúxus.. ég fæ líka stærra
herbergi (herbergið sem mamma og pabbi eru í
núna&eldhúsið).. það verður notalegt.
Arna Sigríður kemur á morgun, ég get ekki beeeðið
eftir að sjá hana, ég hef ekki séð hana í 3 og hálfann mánuð. Við
stefnum á það að fara á rúntinn á bílnum hennar annað kvöld ef
stemmingin verður góð. Arna, ég, Ólafía, NínaGuðrún og Matthildur..
það verður fjöööör =)
Næsta vika fer bara í útsofun, skíði
og fleira.. ég fer síðan í ökutíma á morgun klukkan
15:00 ! ég hlakka mjög til að læra "aftur" á beinskiptann bíl
þar sem ég held ég hafi bókstaflega gleymt öllu síðan
seinast, haha!
Dagný og Hildur María eru
komnar í bæinn.. Arna kemur á morgun þannig þetta er
fullkomið! Við stelpurnar .. Dagný, Anna, Lísa og Katerina
ætlum einmitt að hittast núna eftir smá, ég hlakka til þar
sem það hefur ekki gerst lengi.. ég var veik seinast þegar
Dagný sæta var hér á Ísafirði.
Ahhh.. held þetta sé orðið alveg nóg í bíli..
þar sem ég blogga í firefox þá get ég ekki sett myndir inn með blogginu en
fljótlega koma inn myndir frá helginni !=)
Ingibjörg Elín
Magnúsdóttir
P.s Hvernig finnst ykkur nýji bannerinn
minn ? Eða þessir flottu beliku og bláu dansandi
fuglar
»
23.03.2007 20:59:03 / IngibjörgElín
Hæbb : ) hér kem ég með góða frétt...
Einar fór suður í gær og keppti á Íslandsmeistaramóti
Iðnnema í dag.. í smíðum og hann gerði sér auvðitað lítið fyrir og
vann þetta !! Þar með orðinn
Íslandsmeistari í smíðum , ekki amalegt það

Ég er að springa úr stolti af kallinum og ég má sko alveg vera
stolt af honum .. hann er auðvitað í hæstu hæðum
sjálfur..
Ég ætlaði fyrst ekki að trúa þessu þegar hann sagði mér
þetta en auðvitað er þetta bara gaman .. Biggi var í öðru en hann
var valinn ásamt Einari að keppa þarna fyrir sunnan. Þetta er
náttúrulega bara frábært fyrir Menntaskólann og fleiri .. :
)
Annars.. hef ég voðalega lítið að gera.. veit svona
eiginlega ekki hvað ég geri af mér í kvöld en það reddast.. mamma
komin heim og allt að verða komið í fastar skorður á ný

Bið að heilsa ykkur fólk ! =) Eigiði góða helgi ..
»
21.03.2007 22:47:15 / IngibjörgElín
Hæhæ 
Núna hef ég aldeilis góða ástæðu til að blogga .. ég sit
hér inní tölvuherbergi í Móholtinu (heima hjá Einari) og svona
eiginlega bara býð eftir að kakan sem við vorum að baka fari að
verða tilbúin. Þannig er mál með vexti að mamma mín kemur heim með
fyrri vél á morgun ef veður leyfir og ég og Einar ætlum að vera
tilbúin með skúffuköku fyrir hana. Það er búið að finna út hvað er
að henni og hún á að vera komin í gott stand í Júní segja
læknarnir, þetta eru náttúrulega bara frábærar fréttir fyrir
fjölskylduna og nákomna því þetta hefur staðið yfir svo lengi og
flestir auðvitað orðnir þreyttir á þessu. Ég er allavega ekkert smá
glöð að það sé búið að finna hvað sé að og allt fari svona
fljótlega að falla í sama veg á ný eftir u.þ.b eitt ár.

Einar átti að fara suður í dag að keppa á
íslandsmeistaramóti iðnnema en það frestast fram á morgun eða
lengur vegna veðurs. Ég er ekkert smá stolt af honum að fara að
keppa á íslandsmeistaramóti í smíðum , það er töff ! .. Svo ætluðum
við að fara suður helgina 30 . mars og Unglingameistaramót Íslands
átti að vera þessa helgi en því er frestað um viku vegna slæmrar
veðurspáar. Þá bara verður maður að velja og hafna þó það sé
auðvitað leiðinlegt því það er alveg búið að vera nógu og mikið
vesen með þessa Reykjavíkurferð okkar Einars, en það mun bara bíða
betri tíma þegar ekkert annað stöðvar för okkar suður. Ég hlakka
mjög mikið til. !
Mér finnst ekkert smáá stutt í bílprófið .. innan við 2
mánuðir og ég er strax byrjuð að æfa mig að taka bílpróf á netinu
og þess háttar. Ég ætla svo að taka bara prófið eins fljótlega og
ég get, þegar ég er búin að lesa nóg og læra auðvitað, ég bara
nenni ekki að vera sein í því að gera það og þurfa svo kannski að
taka prófið eftir að ég á afmæli, það bara fíla ég ekki. . hehe .
Það líður ekki að löngu þangað til ég verð farin að krúsa á götum
bæjarins krakkar mínir ! ÁN mömmu og pabba : P
Váá þegar ég lít til vinstri útum gluggan blasir við mér
STAUR klikkað veður.. úff.. ég vona að það verði flogið í
fyrramálið, það bara VERÐUR ! .. bæði mamma & Silja Rán að
koma..það má samt alveg vera ófært landleiðina mín vegna!
: 
Eftirfarandi myndir eru af mér , Sveinbirni
Orra og Hákoni Ara .. fyrir svolitlu þannig að Hákon Ari
er orðinn töluvert stærri og fullorðinslegri en á þessum
myndum. Þessir drengir eru mestu krútt sem þú finnur
! : )
ég og Hákon
Ari í góðu geimi !
Sveinbjörn
Orri- Hákon Ari og ég .. mér finnst Hákon ARi svo fyndinn á þessari
! =)
Ég ætla ekki
að hafa þetta mikið lengra í bili .. takk fyrir mig. Það væri svo
vel þegið ef þið munduð skilja eftir spor hér í kommentum , ég
blogga nú ekkert það oft 
Ingibjörg Elín
Magnúsdóttir
»
15.03.2007 20:29:06 / IngibjörgElín
Hæhæ 
Í dag
akkúrat erum ég og Einar búin að vera saman í 4 mánuði, mér finnst
tíminn alveg skuggalega fljótur að líða...alveg eins og þetta skeði
bara í gær , hehe : )
Hann var voðalega sætur í sér og kom hingað heim til mín í
hádeginu með 4 rauðar rósir, ég er ekkert smá ánægð. Elska þig mest
í heimi :*
Allavega.. ég er núna veik í 4 eða 5. skiptið í vetur, og
ég er ekki að fíla það .. í þetta skiptið er það nefrennsli og
hausverkur sem leiðir útfrá því .. og svo bara vanlíðan út í gegn.
En svona er lífið , maður verður að takast á við það .
Strandagangan er núna næstkomandi laugardag og ég var
búin að ákveða að skella mér í 20 km sem svona smá upphitun fyrir
Fossavatn en maður fer víst ekkert svona, þannig ég verð bara heima
og sendi Einari og fleirum hlýja strauma á Steingrímsfjarðarheiði :
)
Hjalti
átti afmæli á s.l föstudag og varð 18 ára kallinn, ég gaf honum
tyggópakka og 2 sleikjóa.. er það ekki bara hugurinn sem gildir ?
hehe Óli á síðan afmæli á morgun18 ára eins og Hjalti ,..til
hamingu Óli minn =)
Langaði
bara að skella einni færslu inn því ég hef ekkert að gera og þannig
hefur það verið í allann dag.
Ingibjörg Elín
»
11.03.2007 04:52:34 / IngibjörgElín
Ég er svo heppin..
Ég á frábærasta kærasta í heimi.. bestu vinkonur & vini sem
til eru og klárlega heimsins bestu fjölskyldu...
Ég er hamingjusöm.. elska ykkur öll : )
p.s Ég var að koma heim af balli og var klárlega eina edrú
manneskjan á svæðinu sem skemmti sér, þetta var geðveikt
!
-ingibjörg elín
»
25.02.2007 20:24:40 / IngibjörgElín
...
Vá
hvað þessi auglýsing hér fyrir ofan fer ekkert smá mikið í
taugarnar á á mér, bara vegna þess að þegar maður setur músina yfir
hana þá heyrist hljóð, það er eitthvað stef með þessari bjána
auglýsingu, þvílíkt bögg! Fer þetta ekki í taugarnar á
e-um fleirum heldur en mér ??
Annars
er helgin senn á enda eins og ég hef óskað mér seinustu daga, Einar
er núna á leið sinni til Ísafjarðar og hlakka mjög mikið til að
hitta kappann eftir cirka 12 daga, úff : )
Ég hef
ekkert verið að gera á helginni , það sem ber mest uppúr er að ég
fór í lummur til Ömmu&Afa í gær og tók einn rúnt með pabba í
gær og auðvitað keyrði ég , besti driverinn =) Annars hef ég
verið að taka til í herberginu líka, maður verður að hafa eitthvað
að gera meðan maður er að ná þessum veikindum úr sér.. ég ætla að
vera búin að gera allt hreint í herberginu þegar Einar kemur sem
verður örugglega í kringum miðnætti.
Ég
hlakka mjög til að geta farið að æfa á ný í komandi viku, ég hef
ekki stigið á skíði núna í meira en viku sem er fjandi mikið,
hreyfingaleysi í gangi vegna veikinda, þoli ekki þegar það gerist.
Vestfjarðarmót í lengri vegalengdum var í dag og engin keppti í
okkar flokki því ég og Sólveig erum við það að stíga uppúr
veikindum og KolbrúnogKatrín að vinna.. þannig það má með sanni
segja að ég og Sólveig séum gjörsamlega ómissandi ? haha

Ég ætla
að halda áfram að "snyrta" í herberginu mínu... gerið það svo
fyrirmig að vera duglegri að skrifa komment , koma meiri en hundrað
á dag á síðuna og ég fæ að meðaltali eitt komment.. gaman gaman
!
ég googlaði skonsumynd sem var
her.. en það má víst ekki stela af þessari kellinu, kom eitthvað
svaka dæmi í staðinn fyrir myndina, hahah lol ! : )
-Ingibjörg Elín
»
25.02.2007 00:21:36 / IngibjörgElín
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|
|